03 janúar 2009

Williamsburg, Brooklyn

Það er alveg sama hvort L lestin eða J/M/Z eru teknar til Billyburg. Það er alltaf jafn gaman og gott að koma "heim". Sollan ein heima þessa önn, þ.e. ef Perla og Goggi eru ekki talin með. Hún útskrifast í vor. Kallinn sendur á klakann til að vinna fyrir salti í grautinn, mætti rétt fyrir kreppu. Verður lítið af dollurum til fyrir allt erfiðið þessa dagana. Sjáum hvað setur. Kannski fæst Solla til að byrja að blogga aftur?

04 maí 2008

B-burg


Hægt er að hafa það huggulegt í hverfinu okkar um helgar og fá sér fernu af Pinot Grigo á næsta horni






...eða fara á listsýningar. 

Flokkar:

20 apríl 2008

Plat, gervi, eftirlíkingar og álíka

"Að slátra kjúkling til að hræða apana" er kínverskur málsháttur sem þótti viðeigandi þegar forstjóri FDA (food and drug administration) í Kína var dæmdur til dauða fyrir að þiggja mútur og horfa hjá gerð gervilyfja.

Flokkar:

25 mars 2008

Litli páskaunginn

Hún á ammæli í dag þessi elska. Annar í páskum og ammælið hennar en engu að síður þurfti hún í skólann, vízt líka mánudagur. 

Hún fékk enga köku frá mér, of mikið til af páskaeggjum ennþá. Kannski hún fái að halda smá upp á daginn sinn líka um helgina þar sem ekki nema brot af þessum var nýtanlegur. 

Hún átti ammæli í dag. Segi ekki hversu ung hún varð. Heilsur.

21 mars 2008

Spring Break



Er búin að vera í fríi síðustu daga, meira að segja almennilegu fríi. Ansi góð tilbreyting að kennarar fyrirskipi manni að gera ekki neitt í fríinu.
Hef því varla gert neitt síðustu daga nema að sofa og fara út á kvöldin. Ekki leiðinlegt að fá að upplifa lífið í NYC aðeins.